|
SportFengur er veflægt mótakerfi fyrir Landssamtök Hestamannafélaga (LH) til að
halda utan um íþrótta- og gæðingakeppni. SportFengur er dótturforrit WorldFengs (WF), upprunaættbókar íslenska
hestsins og samnýtir SportFengur ýmis gögn í upprunaættbókinni.
Í SportFeng eru öll mót stofnuð með
keppendum í öllum greinum og eru þá upplýsingar um hross sóttar í WF. Öll hross verða að vera skráð í WF til að fá
þátttökurétt í mótum. Kappi er sérstakt gluggakerfisforrit sem notað er á mótsstað og vinnur án tengingar við Internetið.
Í Kappa eru allar niðurstöður móts skráðar og að móti loknu eru þær sendar rafrænt í SportFeng yfir Internetið.
SportFengur safnar saman öllum niðurstöðum íþrótta- og gæðingakeppna á einn stað í miðlægan gagnagrunn.
SportFengur er þróaður í tölvudeild Bændasamtaka Íslands í samráði við tölvunefnd LH.
LH veitir alla þjónustu við notendur kerfisins.
|